...eða prófin sem fá fólk til að kíkja hér inn!!!! alveg ótrúlegt hvað fólk droppar hérna inn þegar ég er svona löt að þessu dæmi...er ekki búin að blogga síðan...uuu.... í ágúst! Er einhver sem getur toppað þá leti og er ekki beint búinn að slútta þessu hmmm...???
Annars er ég bara í góðum málum þessa dagana. Er hætt að engjast í prófum (sorrý til þeirra sem kveljast enn), kláraði þau 6. des, alveg frábært. Þurfti reyndar að skila stóru verkefni þann 12. ég dró það náttla alveg til síðasta dags og var einn og 1/4 dag straight að vinna í því...mjög skemmtilegur dagur þar á ferð. Ég er búin að fá eina góða einkunn svo eru kennararnir eitthvað að draga það á langinn að setja inn einkunnir sem getur verið svolítið þreytandi...en ég er ekki að fara að falla á neinu.
Svo er ég að vinna hjá frænku minni í skartgripabúðinni Fríða á Strandgötu í Habbnafirði. Það á alveg einstaklega vel við dundarann mig að setja saman festar og svona dútl...love it!!! Þessi vinna bjargar mér alveg svo ég hafi eitthvað að gera og til að safna peningunum sem ég ætla að eyða úti í GLASGOW núna frá fimmtudeginu að Þorláksmessu. Ég er alveg vís til að setja met í farakaupum...enda hef ég alveg náð að bæla niður þá fíkn í ansi langan tíma og finnst mér ég eiga skilið að eiga t.d. allavega tvennar gallabuxur sem mér finnst flottar. Er það ekki lágmarkið???
Við Sigfús erum sem sagt að fara að skella okkur út fyrir jólin með Ásdísi megaskvísu og spúsa hennar honum Sigurjóni eðal jarðfræðingi. Gaurarnir eru strax búnir að ákveða að klára jólainnkaupin á klukkutíma og fara svo að drekka bjór og horfa á fótbolta...eða var það hálftíma!!!! In tha mean time (vonda tímanum) ætlum við Ásdís að fara hamförum og drukna í fötum. Ef því líkur þá höfum við tíma til að skemmta okkur aðeins með gaurunum okkar og kíkja kennski í einn öl eða svo. 
Ef allt gengur svo upp þá komum við eitthvað um 23:00 á Þorláksmessu ef veður leyfir...ég ætla bara rétt að vona að við þurfum ekki að halda jólin semi hátíðleg með Icelandair-farþegum í Færeyjum eða eitthvað álíka spennó!!!
þetta er daman sem ég er að fara með út
og þetta er drengurinn sem ég er að fara með út
hér erum við svo líka ...bara svona ef þið voruð búin að gleyma hvernig við lítum út
Svo var yndislega frænka mín skýrð 8. des. Hún var skýrð Dagný Guðmunda Sigurðardóttir. Guðmunda er í höfuðið á ömmu minni á Selfossi og Dagný er út í loftið. Sigurðardóttir er víst af því að Siggi er pabbi hennar hehe. Ég var skýrnarvottur ásamt Andreu frænku og Davíði bróður Sigga. Ég var eitthvað með í maganum þarna í byrjun...var bara mjög sátt við að hafa ekki gúbbað í athöfninni. Veit ekkert hvað kom yfir mig...ætli ég hafi ekki verið svo stressuð að klára verkefni og ná að koma á réttum tíma bara. En hér er múslan
algjört bjútí :*
En nú ætla ég að skella mér í að redda dálitlu fyrir jólin.
Hó, hó, hó Helena